28 Janúar 2019 09:14

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 22. janúar til miðvikudagsins 23. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á einum sólarhring fóru 3.950 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að stöðug snjóþekja og éljagangur var á meðan hraðamælingunni stóð.