29 Janúar 2019 13:28

Brot 165 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 25. janúar til þriðjudagsins 29. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á fjórum sólarhringum fóru 22.454 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. 

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.