2 Desember 2010 12:00

Brot 211 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Sæmundargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 749 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86. 

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.