14 Nóvember 2019 09:08

Brot 163 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 11. nóvember til miðvikudagsins 13. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 15.499 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.