20 Nóvember 2019 13:01

Brot 128 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 18. nóvember til miðvikudagsins 20. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 14.915 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.