29 Október 2019 16:02

Brot 259 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 25. október til þriðjudagsins 29. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á rúmlega fjórum sólarhringum fóru 31.697 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.