4 Nóvember 2019 16:53

Brot 241 ökumanns var myndað á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 1. nóvember til mánudagsins 4. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 25.201 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.