12 Nóvember 2019 08:52

Brot 165 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 8. nóvember til mánudagsins 11. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á rúmlega þremur sólarhringum fóru 26.946 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.