1 Nóvember 2019 08:59

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 29. október til fimmtudagsins 31. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 14.919 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.