25 Október 2019 10:19

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 23. október til fimmtudagsins 24. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega einum sólarhring fóru 7.008 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.