30 Mars 2010 12:00

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvaleyrarbraut í norðurátt, milli Brekkutraðar og Skipalóns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hvaleyrarbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hvaleyrarbraut en þá óku hlutfallslega ívið fleiri, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 14%.