8 Ágúst 2012 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvaleyrarbraut í suðurátt, við Skipalón. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82. 

Vöktun lögreglunnar á Hvaleyrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.