18 Ágúst 2014 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvaleyrarbraut í norðurátt, við Skipalón. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða tæp 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hvaleyrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.