2 Nóvember 2016 17:40

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvaleyrarbraut í suðurátt, að Brekkutröð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 122 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Hvaleyrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.