31 Mars 2008 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvaleyrarbraut í norðurátt, nærri Brekkutröð. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 132 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Eftirlit lögreglunnar á Hvaleyrarbraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hvaleyrarbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.