25 Mars 2009 12:00

Átján ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 18 ökumanna mynduð á Hvannavöllum en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Kvistavöllum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því óku 72% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hvannavöllum. Í fyrra var niðurstaðan mjög slæm, eða 52% brotahlutfall, en hún er ennþá verri núna, eins og að framan greinir. Meðalhraði hinna brotlegu er svipaður á milli ára en hann var tæplega 49 km/klst í fyrra.