24 Mars 2010 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í norðurátt, að Kvistavöllum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 37 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 71.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hvannavöllum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hvannavöllum en þá óku hlutfallslega enn fleiri, eða 72%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 52%.