20 Mars 2012 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í austurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Hvannavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.