3 Október 2013 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í austurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Hvannavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.