17 Mars 2015 09:02

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í austurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Hvannavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.