10 Mars 2016 16:14

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í austurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Hvannavöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.