6 Desember 2007 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið um Hvannavelli á móts við Kvistavelli. Á einni klukkustund fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 83.

Eftirlit lögreglunnar á Hvannavöllum kom í kjölfar ábendinga íbúa um hraðakstur en kvartanir þess efnis bárust til svæðisstöðvarinnar í Hafnarfirði.