13 Nóvember 2014 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, á móts við Hverfisgötu 73. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50. 

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.