10 Febrúar 2015 14:51

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, á móts við Hverfisgötu 73. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.