15 Desember 2015 13:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, á móts við Hverfisgötu 69. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.