24 Maí 2017 10:36

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í austurátt, við Vitastíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 245 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.