17 Mars 2020 19:29

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, við Frakkastíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 102 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.