9 Júní 2020 18:14

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, á móts við Hverfisgötu 69. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.