2 Mars 2022 14:43

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í vesturátt, að Klapparstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 219 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 39 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 40.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.