18 Ágúst 2009 12:00

Einn var staðinn að hraðakstri á Kaldárselsvegi í Hafnarfirði á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði var brot 1 ökumanns myndað á Kaldárselsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, austan við hesthúsabyggðina sem þarna er. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 15 ökutæki þessa akstursleið og því var umferðin lítil. Bíll þess eina sem ók of hratt eða yfir afskiptahraða mældist á 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar á Kaldárselsvegi var tilkomið vegna ábendinga frá borgurum sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað. Þrátt fyrir niðurstöðuna verður áfram fylgst með hraðakstri á Kaldárselsvegi.