18 Desember 2019 15:56

Brot 71 ökumanns var myndað á Kalkofnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kalkofnsveg í norðurátt, við Kolaport bílastæðahús. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 360 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Kalkofnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.