20 Febrúar 2023 10:43

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Kalkofnsvegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kalkofnsveg í suðurátt, við Hörpu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 294 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Kalkofnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.