14 September 2016 10:02

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.