15 Desember 2016 16:46

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 61. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.