4 September 2017 14:40

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við KR-völlinn. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.