16 Maí 2018 09:06

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.