12 Nóvember 2013 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á milli Hagamels og Frostaskjóls. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.