1 September 2021 14:01

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.