28 Maí 2014 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.