8 Apríl 2009 12:00

Þrettán voru staðnir að hraðakstri á Karlabraut í Garðabæ á mánudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á mánudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 13 ökumanna mynduð á Karlabraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Hnoðraholtsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Karlabraut og þá var niðurstaðan mjög svipuð. Þá óku 13% of hratt eða yfir afskiptahraða ogn meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst.