7 Apríl 2008 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Karlabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Karlabraut í norðurátt, að Búðum. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Einn ók á 70 km hraða eða meira en sá mældist á 74.    

Eftirlit lögreglunnar á Karlabraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Karlabraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.