9 Mars 2015 19:51

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut, en á meðan henni stóð gekk á með snjókomu og snjóþekja var á akbrautinni, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.