2 Apríl 2009 12:00

Sjötíu og þrír voru staðnir að hraðakstri á Kársnesbraut í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 73 ökumanna mynduð á Kársnesbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, nærri Hábraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 205 ökutæki þessa akstursleið og því óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Ellefu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Kársnesbraut og þá var niðurstaðan hlutfallslega skömminni skárri. Þá óku 30% of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var hinsvegar hærri í fyrra, eða 66 km/klst.