10 Apríl 2019 17:31

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 21. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 203 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.