8 Júní 2021 09:29

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 303 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.