10 Febrúar 2023 14:09

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 33. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 200 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.