6 Apríl 2011 12:00

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, gegnt Marbakkabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 256 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79.

Eftirlit lögreglunnar á Kársnesbraut var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið aðeins hærra, eða 30-36%.