10 Apríl 2008 12:00

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, nærri Hábraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 223 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sautján óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.      

Eftirlit lögreglunnar á Kársnesbraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Kársnesbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.