19 Mars 2008 12:00

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kirkjuvelli í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 77%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sautján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97 en þar var um bifhjólamann að ræða. Þess skal getið að á þeim hluta vegarkaflans, þar sem hraðamælingin fór fram, eru bæði þrenging á götunni og hraðahindrun sem og biðstöð strætisvagna

Eftirlit lögreglunnar á Kirkjuvöllum er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Kirkjuvöllum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.