4 Nóvember 2014 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Kópavogsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í vesturátt, á móts við Kópavogsbraut 9. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70. 

Vöktun lögreglunnar á Kópavogsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.